|
|
06.08.2007 22:25:42 / Arnarinn
Þytur í laufi...er ég gekk niður sjúkrahústúnið þar sem við
drengirnir vorum vanir að leika okkur þegar við vorum ögn yngri.
Allt virðist vera breytt, áður ókláruð hús eru orðin að
heilsteyptum byggingum og allstaðar rísa upp einhverskonar
mannvirki. Ég hugsaði hvort ég væri virkilega orðinn svona gamall,
hvert fóru öll dásamlegu æskuárin, fuku þau út í veður og vind með
laufunum sem virtust vera byrjuð að falla af trjánum umhverfis
læknabústaðinn sem enn voru þó á sínum stað. Voru þau virkilega
liðin, árin sem engar áhyggjur voru til staðar, nema kannski óttinn
við býflugurnar sem bjuggu í álfahúsunum sem nú voru horfin á
braut. Hvar er sá tími sem maður hjólaði hyggjulaus á BMX hjólinu
sínu niður brekkurnar og þurfti ekki neitt annað en hjálm og tvo
dekk......hvenær hvarf hann á braut.
Nú þarf maður að horfa í allar áttir, hafa augun hjá sér og
fleiri orðatiltæki sem hafa litið dagsins ljóss í nútímanum. Ekki
dugir lengur að eiga hjól, heldur þarf maður líka lás á hjólið.
Ekki er þetta það sem við vildum, en samt keppa allir
einhvernveginn við sjálfan sig í þessarri þróun, í von um að hafa
það betra en náuginn í næsta húsi. Mennirnir eiga ekki afturkvæmt í
þá veröld sem var, það er engin undankomuleið og enn og aftur kemur
kenning Darwins uppá yfirborðið, þó hún hafi verið sett fram löngu
áður en heimur nútímans reið sér völl.
ArnarInn kveður í hugleiðingum
»
10.07.2007 19:14:56 / Arnarinn
Ég er ekki alveg dauður úr öllum æðum, þ.e.a.s. í bloggheiminum.
En allavegana get ég skýlt mér bak við það að nú er sumar og þá er
oftar en ekki mikið að gera. Frá síðasta bloggi sem var snemma á
seinustu öld (nánast) hefur mikið á daga mína drifið. Til þess að
stikla á stóru set ég nokkra góða punkta hérna á eftir þessum
tvípunkti:
- Fórum í úrslitakeppnina í drengjaflokki....töpuðum í
undanúrslitum fyrir KR í bragðdaufum leik. léleg hittni fór með
leikinn.
- Héldum okkur uppí í Iceland express deildinni í körfu. Nálægt
því að komast í úrslitakeppnina en markmiði seasonsins
náð.
- Kláraði prófin í FNV.
- Útskrifaðist með stúdentspróf úr FNV.
- Hélt útskriftaveislu samhliða afmælisveislu mömmu sem varð 40
ára....geggjað stuð!
- Sumarið komið
- Byrjaði í fótboltanum....
- Byrjaði að vinna á hinum eina sanna Sauðárkróksvelli.
- Fékk inngöngu í Háskólann í Rvk.
- Fór til Portúgals.
- Er að vinna eins og maniac....
- Kljást við bakmeiðsli í fótboltanum...
- Er að leita af íbúð í rvk og lífsförunaut (bíl)

Þetta er svona það helsta...er pottþétt að gleyma einhverju....
En ég flyt semsagt í Sódómu Gomorru í haust...lok ágúst nánar
tiltekið... Það verður skrítið, en bara gaman held ég og smá
challenge fyrir mann. Maður stefnir auðvitað á toppinn, ætla reyna
spila basket í borginni og sýna þessum borgarbörnum hvernig
strákarnir í sveitinni "skjóta þriggjastigaskotum
afturfyrirsigfrámiðju" ofaní. Hvaða lið...? Ég held auðvitað með
Newcastle og ætli maður reyni ekki að finna lið sem spilar í
svipuðum búningum...annars er aldrei að vita.
Annars ætla ég að byrja blogga af krafti fyrir
sunnan....vætanlega á nýrri síðu...þessi er að verða barn síns
tíma.... nýir tímar kalla á nýja síðu....
Arnarinn kveður í bili
»
10.02.2007 18:36:33 / Arnarinn
Já Já Já! Einn tveir Selfoss! reymið
skóna! partýskóna!!!...partý í kvöld
Ég er mættur með blogg í húsinu, aðallega vegna þess
hversu sáttur ég er í augnablikinu..Pumpaðu upp!
Við í drengjaflokk vorum að spila við KR-inga fyrir nokkrum
tímum, það var hörkuleikur sem byrjaði mjög vel, hittnin var góð í
byrjun og komust við í 24-14. Það má segja góð byrjun hafi lagt
grunninn að þessum sigri. Þrátt fyrir að KR-ingar hefðu sinn
fulltrúa í dómgæslunni, sem er held ég alveg röndóttur í gegn og
blóðið í honum svart/hvítt þá hömsuðum við þessar pulsur samt sem
áður. Búbbi náði að hamra eina pulsuna í andlitið, líkt og
kjöthamar, Ingvi var með sinn besta leik í vetur að mér fannst og
dró vagninn þegar á reyndi, Halli náði að henda boltanum
framan í pabba sinn og reyndar líka negla nokkrum stórum
þristum framan í KR-ingana. Sjálfum fannst mér ég ekki vera
spila vel, eða hefði allavegana getað gert mun betur. En
sigurinn var sætur, og hey það er pulsur í matinn hjá mér í
kvöld, tilviljun?
Lokatölur 74-70
Stig: Ingvi 22, Arnar 20, Halli 13 (16 reb) , Hreinsi (var með
slatta 10+) aðrir minna.
Svo get ég nú ekki sleppt því að fagna þegar Newcastle vinnur,
það gerist ekki svo oft, þeir komnir í 9 sætið eftir að
hafa tekið Liverpool í kennslustund...Bellamy fávitinn mættur
á St.James's Park, hélt að Shearer hefði varað hann við að láta
ekki sjá sig, en sigurinn var sætur!
Svona að lokum, það er ótrúlegt hvað þessir KR-ingar eru
merkilegir með sig, en eins og Love Guru segir þá er merkilegra að
vera góður, og það er það sem Drengjaflokkur Tindastóls er!!!!
ArnarInn - KR pulsur!
»
07.12.2006 23:22:33 / Arnarinn
Jæja. Er ekki kominn tími á blogg. Smá svona gáta og einn
léttur brandari í skammdeginu sem er reyndar að hverfa í öllu
jóladraslinu sem siggi stormur ætlar að feykja burt á
laugardagskvöldið.
Gömul gáta, veistu svarið?
"I am the beginning of the end. You can see me twice in a
week, but not in a day. Once in a year but twice in a decade. Who
am I??"
Sjaið hvort þið vitið svarið
Svo einn góður hér:
Kínverjinn: ég ekki koma í vinnu, ég veikur.
Yfirmaðurinn: þegar ég er veikur ríð ég konunni minni og þá lagast
ég, reyndu það.
Eftir 2 tíma hringir kínverjinn, "þetta virka, ég koma. Þú eiga
flott hús!!" 
»
25.10.2006 18:14:44 / Arnarinn
Það er einn leikmaður sem ég mun aldrei gleyma svo lengi sem ég
lifi. Það er goðsögnin Alan Shearer. Þessi einstaki leikmaður hefur
svo sannalega átt glæstan feril. Um leið og ég sá hann vissi ég að
þetta var maðurinn sem ég dýrkaði!
Ætla láta inn hér link á video sem var gert í minningu 10áranna
sem hann spilaði fyrir Newcastle. Þessi magnaði leikmaður skoraði á
sínum ferli yfir 300 mörk í ensku úrvalsdeildinni sem er töluvert
meira en nokkur annar leikmaður hefur nokkurn tíman gert. Þar af
skoraði hann 201 fyrir Newcastle.
En hérna kemur video-ið, njótið vel:
http://www.youtube.com/watch?v=ZOOsJK25bR8&mode=related&search=

Ps. Ef þið hafið eitthvað neikvætt að segja um Kónginn, þá eruð
þið ekki með fulla fimm, sleppið því þá bara og farið á aðrar
síður! Takk fyrir.
»
21.09.2006 17:28:14 / Arnarinn
Ég hef áður viðrað þá
skoðun mína að Marlon Harewood er líklega mest ógnvekjandi
leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar. Hann er með afar ófrýnilegt
andlit og skornari en andskotinn. Þetta er líklega sá maður í
ensku úrvalsdeildinni sem ég myndi hvað síst vilja hitta í
dimmu húsasundi.

Marlon ákvað um helgina að
sannreyna það fyrir mér að ég væri voða lítið að fara að ögra honum
eitthvað ef ég skildi rekast á hann einhvern tímann.
Marlon lenti
nefnilega í samstuði við Shay Given um helgina. Samstuðið var
ekkert alvarlegra en gengur og gerist og héldu menn að Shay
myndi standa upp eftir aðhlynningu. En svo var ekki og Steve
Harper einn af eilífðarvaramarkmönnum ensku úrvalsdeildarinnar
fékk langþráð tækifæri, sem hann reyndar klúðraði BigTime í
gær, guð minn góður .
Svo berast fregnir af því
fyrir skömmu að Shay þurfi að undirgangast aðgeða á maga. Læknir
Shay sagði að þessi aðgðerð væri gerð til að stöðva leka sem á sér
stað í maga Shay. Hann sagði einnig að þess háttar meiðsli þekktust
helst hjá fórnarlömbum bílslysa. Högg Marlon líktist sem sagt höggi
sem maður fær þegar hann lendir í bílslysi.
Það er því alveg ljóst að
Marlon Harewood er að mínu mati mest ógnvekjandi leikmaður ensku
úrvalsdeildarinnar. Hann er sá leikmaður sem ég myndi aldrei vilja
dekka, ekki hitta í dimmu húsasundi og myndi aldrei ögra ef ég
hitti hann í bænum.
Með batakveðjum til Shay
Given,
ArnarInn
»
16.09.2006 20:12:33 / Arnarinn
Fimmtudaginn 7. sept hélt ég á fjöll að leita af kindum.
Hérna eru myndir sem ég tók af því!
http://public.fotki.com/arnarinn/
Arnar kveður, sjálfstæðari en nokkru sinni áður!
»
15.09.2006 20:40:06 / Arnarinn
Undarlegt atvik
átti sér stað í belgíska fótboltanum. Þannig var mál með vexti að
lið A var í sókn. Varnamaður liðs B meiðist og fellur til jarðar
við vítateiginn á eigin vallarhelming. Lið B brunar í sókn en tapar
boltanum á hinum vallarhelmingnum. Sóknarmaður A ákveður að nýta
sér tækifærið og bíður við hlið varnarmannsins á meðan allir aðrir
leikmenn úr báðum liðum hlaupa yfir á hinn vallarhelminginn.
Varnarmenn A senda því því næst langan bolta inn á vallarhelming B
þar sem sóknarmaður A fær boltann, nýtir sér meiðsli varnarmannsins
og skorar mark. Meiddi varnarmaðurinn spilaði sem sagt
sóknarmanninn réttstæðan (þ.e.a.s. tók Gary Neville á þetta).
Línuvörðurinn sá ekkert athugavert við þetta og hélt flagginu
niðri. En aftur á móti sá dómari leiksins ástæðu til þess að flauta
á þetta og dæmdi markið ógilt og það vegna
rangstæðu.
Er dómarinn var beðinn um að útskýra ákvörðun sína sagði
hann að meiddi varnarmaðurinn hefði ekki haft áhrif á leikinn. Menn
þekkja það þegar leikmenn sóknarliðsins eru ekki dæmdir rangstæðir
er félagar þeirra komast í færi vegna þess að þeir hafa ekki áhrif
á leikinn. Þetta er að mér vitandi í fyrsta skipti sem varnarmaður
er sagður ekki hafa áhrif á leikinn.
Það er ansi margt til í þessu hjá dómaranum og þess má
geta að varnarmaðurinn var augljóslega mikið meiddur og gat ekki
spilað meira í leiknum. Þarna er spurning hvort þetta sér
réttlætanlegt og það voru margir sem studdu þessa ákvörðun Belgíska
dómarans. Ég er ekki að segja að ég sé sammála þessu, þar sem
dómarinn hefði auðvitað átt að stoppa leikinn. En hann benti á það
á móti að sóknarmaðurinn hefði ekki spilað í anda
knattspyrnulaganna og brotið reglur um að virða
mótherjann.
Þess má geta að Belgíska knattspyrnusambandið setti
dómarann í bann.
Langaði að deila
þessu með ykkur, eruð þið sammála dómaranum?
»
04.09.2006 18:40:21 / Arnarinn
Jiss þið sáuð rétt og lásuð vonandi líka,
ekki nema þið kunnið ekki að lesa eða stamið, nýtt blogg, ég veit
að ég er brjálaður að blogga svona oft, en ég virðist
einhvernveginn ekki hafa neitt annað að gera. (Þessi setning myndi
kallast háð, samkvæmt íslensku 503, þeim unaðslega áfanga). En já
skólinn er byrjaður og fyrsta vikan var samkvæmt venju busavikan,
ég ákvað að fylgjast með þessu öllu bara úr fjarlægð þar sem ég er
frekar rólegt dýr að eðlisfari, enda var nóg af fólki um að pína
þessa verslings nýnema sem er alltof mikið af í skólanum verð ég að
segja. Það liggur við að það sé ekki pláss á göngunum fyrir múg og
margmenni. Samt sem áður var Sara svo góð að gefa mér bol sem stóð
Böðull 2006 á, takk Sara. 
Svo var að sjálfsögðu busaball um kveldið, og skemmti ég mér bara
óvenjuvel verð ég að segja, var ekkert alltof spenntur en þetta var
bara gaman. Ætla láta mynd fylgja sem pálmi þór tók, hún lýsir
nokkuð vel hversu gaman mér fannst.

Fór svo á Sunnudeginum í sveitina sem var best, alltaf gott að
anda að sér sveitaloftinu. Var að fara með gánahestana, því það eru
göngur á fimmtudaginn, en fyrir þá sem vita ekki hvað göngur eða
leitir eru, þá er það þegar "bændur" gángamenn halda uppá fjöll til
að sækja sauðfé sitt og stóð og koma því til réttar. og fyrir þá
sem vita ekki hvað réttir eru, þá er það þegar öll hrossin og
sauðféið er komið saman niður í byggð inní svona stóran steyptan
hring, þar er hver bóndi með ákveðinn dilk (hólf) með númeri á, svo
eru svona númer á eyrunum á kindunum og fólkið keppist um að koma
kindunum til rétts bónda. Þá er það á hreinu. Ég mun halda uppá
fjöll um 7 leitið á fimmtudagsmorgninum og koma aftur niður í byggð
seint á föstudagskveldi, vonandi hress og kátur, stútfullur af
íslensku fjallalofti. Svona fyrir ykkur sem ekki hafa farið á fjöll
þá er þetta mjög sérstök tilfinning, það fara allir saman upp á
hestum, uppí skála, þar er steiktur nýveiddur silungur og soðnar
karftöflur sem er æði að borða, síðan er kvöldvaka og voða gaman.
Daginn eftir er svo haldið eldsnemma af stað ef ekki er einhver
þoka að stríða okkur, menn raða sér í línu yfir heiðina og ganga
alla leið niður, þannig að rétt sést milli manna. Það getur verið
scary að vera svona lengi einn með sjálfum sér, sérstaklega þegar
skyggnið er lélegt, en þá reynir á að vera með fjörugt ímyndunarafl
og hafa gaman af sjálfum sér.
Þetta mun var Bjartur í sumarhúsum í sínum 30.
réttum
En já vonandi hefur þetta gefið ykkur innsýn í sveitalífið,
þessa skemmtilegustu helgi bóndans. Þannig að ef þið farið að sakna
mín, þá er ég uppá fjöllum, kem svo með fullt af myndum af þessu
öllu saman eftir helgina.
Arnar Gángnamaður kveður 
»
21.08.2006 22:59:49 / Arnarinn
Hérna eru tíu
góð ráð um hvernig á að sýnast upptekinn í vinnunni án þess að
þurfa í raun að gera handtak.
BIRT ÁN ÁBYRGÐAR!
Finnst sumt þarna passa grunsamlega vel við
yfirmann minn, en ég veit samt ekki með sumt af þessu.

1. Virðast
upptekinn:
Að hafa allskonar braðarusli samviskusamlega dreift um skrifborðið
klikkar ekki. Það hjálpar líka þegar strokleðrið á blýantnum er
orðið svo eytt að það sést varla í það. Ef þú þarft að labba
eitthvert innan vinnustaðarins, labbaðu þá niðurlútur og sprettu úr
spori. ALDREI ALDREI mynda augnsamband. Ef þú ert með eitthvað í
höndunum, eins og til dæmis eitthvað skjal, á meðan þú ert á þessum
göngutúr, minnka líkurnar á að einhver trufli þig.
2. Virðast stressaður:
Golden. Ef þú lítur út fyrir að vera að fá magasár af stressi munu
samstarfsmenn og yfirmenn frekar láta þig í friði, þar sem það er
bæði rökrétt og augljóst að þú ert að gera eitthvað virkilega
aðkallandi. Til þess að líta út fyrir að vera stressaður er best að
hreyfa augun mikið (passa að fókusa þeim ekki á einhvern einn
stað), fara mikið á milli staða á vinnustaðnum og tala við sjálfan
sig á meðan og ef einhver spyr þig að einhverju skaltu horfa í
tómið í smástund, andvarpa og svara í pirruðum tón.
3. Tala hratt:
Ef það fattar enginn hvað þú segir verður bara gert ráð fyrir því
að þú hafir ekki tíma til að útskýra það.
4. Fela sig:
Gulltryggt. Finndu góðan felustað. Til dæmis má fela sig undir
skrifborðinu, í loftræstistokknum (ef þitt fyrirtæki býr svo vel)
eða í kústaskápnum.
5. Brjóta útlim:
Virkar augljóslega bara ef þú ert verktaki eða ert í vinnu sem
krefst líkamlegs erfiðis (að skrifa email telst ekki með). Hvernig
þú ferð að því að brjóta útlim er alveg undir þér komið. Ég ætla
ekki að leggja neitt til þar sem þetta er afar sársaukafullt.
6. Afsaka sig:
Það jafnast ekkert á við það að hafa margar góðar afsakanir í
handraðanum. Að sjálfsögðu verðurðu að leggja þær á minnið, það er
ekkert sannfærandi við það að lesa þær upp af minnisblaði. Þú gætir
til dæmis sagt: "Jújú, ég myndi nú venjulega alveg vinna yfirvinnu,
en ég verð að passa gullfisk systur vinar frænku mömmu minnar".
7. Aldrei fara út úr skrifstofunni:
Ef þú ferð aldrei út úr skrifstofunni ertu síður ónáðaður. Mundu
þetta fína enska mottó: "Out of sight, out of mind". Vitaskuld
verður að tryggja að þú hafir nóg mikið af nesti svo þú lifir þetta
af þangað til þú mátt fara heim. Klósettferðavandamálið er þó enn
óleyst.
8. Það sem ekki sést...
Endurraðaðu húsgögnunum í skrifstofunni hjá þér svo að
tölvuskjárinn þinn snúi frá öllum hurðum og gluggum sem
yfirmaðurinn þinn gæti séð í gegnum. Þetta gefur þér nægan tíma til
að taka allt óæskilegt efni niður af tölvuskjánum þegar bossinn
ákveður að kíkja í heimsókn til þín á skrifstofuna og borða allt
nestið þitt.
9. Blekkingar:
Ef þú getur ekki endurraðað í skrifstofunni gæti verið ráð að ná
sér í lítið sniðugt forrit sem heitir WorkFRIENDLY sem felur allar
vefsíður sem þú skoðar og dulbýr þær sem wordskjal.
10. Veldu starfsheiti sem fólk skilur ekki:
"Ég vinn við vefþróun" er til dæmis loðið og illskiljanlegt. Fólk
veit eiginlega ekkert hvað þarf til þess að vinna við vefþróun (og
vera þá væntanlega titlaður vefþróari), þannig að þú gætir verið að
blogga og fólk heldur að þú sért að vinna við eitthvað
meistarastykki... eins og ég núna.
Ég legg til að þetta verði hengt upp á öllum vinnustöðum
landsins.
ATH!! Vil svo minna
á könnunina hérna til hliðar --->
»
16.08.2006 22:26:13 / Arnarinn
Já þótt fótbolti sé skemmtilegur, þá eru ummæli leikmanna og
annarra sem koma að boltanum oft ansi skondin, mig langaði að deila
nokkrum tilvitnunum hérna með ykkur á þessu þokukenda
miðvikudagskveldi, þar sem við í Tindastóli vorum að vinna Snæfell
7-1, samt sem áður slappur leikur og menn fóru illa með færin,
nefni engin nöfn, jú kannski nafnið hans Davíðs. Annars voru
markaskorarnir þessir í réttri röð: Aðalsteinn Arnarsson, Gísli
Eyland Sveinson (spilaði frammi nota bene), Kristján Baldursson,
Marc Christansen, Haukur Skúlason, Sjálfsmark mótherja (ég átti það
samt alveg sko) og ArnarInn rak svo smiðshöggið Og
ekki tókst honum Pálma að skora frekar en fyrri daginn, held að
þetta sé svona stífla hjá honum sem á einhvertíman eftir að bresta
og þá halda honum engin bönd, ekki satt Pálmi?
En þá koma gullkornin, dáldið langt en þeir sem hafa ekkert að
gera, t.d. í vinnunni *hóst*hóst ættu að gleðjast :
“Þarna sjáum við Jan Köller,
einmana eins og kleina þarna”
-Lárus Guðmundsson
“Without being too harsh on
David Beckham, he cost us the match”
-Ian Wright
Þessi er beint frá hjartanu og er rosaleg 
“I've
never wanted to leave. I'm here for the rest of my life, and
hopefully after that as well”
-Alan Shearer
“There'll be no siestas in Madrid
tonight”
-Kevin Keegan
Logi Ólafsson í fyrra ( um
D.Cisse)
"Þarna kemur rauðhærður niggari inná".
Það er
auðvitað ekki hægt að tala um Bjarna Fel öðruvísi en að minnast á
þegar hann var að lýsa leik Belga og Þjóðverja á HM og
Þjóðverjarnir voru að merja lífið út úr Belgum og komnir held ég
3-0 yfir, að þá segir Bjarni Fel af sinni alkunni snilld: "Ég held
bara að það sé allur vindur úr Belgum."
Bjarni Fel í leik Hollands og Belgíu
HM 98: Belgar eru með alla leikmenn í eldri kantinum, þeir stilla
bara upp liði eldri borgara !
Í leik Ítala á HM 98... Giuseppe Bergomi er kominn með boltann,
hann er nú farinn að lýjast kallinn.
Bjarni Fel enn og aftur.: " Og hér er að hefjast leikur FH-inga
og Hauka og það eru Hafnfirðingar sem byrja með boltann...."
Gamalt og gott frá Arnari Björnss. fyrir nokkrum árum síðan:
"Sjáið þið Thomas Hassler, hann nær ekki einu sinni upp fyrir
hornfánann"
"Það var eins gott fyrir Paul Parker að það var búið að slá
grasið á vellinum..."
Arnar Björnsson á 54. mínútu í leik
Middlesbrough - Manchester United: Christian Ziege hefur ekki
leikið síðustu 16 landsleiki sem þýska landsliðið hefur leikið án
hans.
Bjarni Fel var eitt sinn að lýsa
úrslitaleik Liverpool og Arsenal í ensku bikarkeppninni. Liverpool
var að vinna og upphófu þá áhangendur upp sönginn góða: You'll
never walk alone. Bjarni kallinn var fljótur að snara þessu yfir á
íslensku og sagði: "Og nú syngja aðdáendur Liverpool: þið gangið
allir einir".

Það má ekki gleyma því allra besta það var Bjarni Fel sem lýsti
leik Tékka og Þýskalands (held ég) á EM 96 þá sagði hann "Pavel
Kuka er með boltann Kuka kemur.. kuka dettur niður... og
Kuka...skýtur...en Kuka skeit honum rétt yfir" ég hlæ ennþá að
þessu...
Og við skulum enda þetta á nokkrum léttum frá sjálfum Gaupa
“...og
spyrnumaður góður”
“...Hefur vart stigið feilnótu í leiknum"
“...gargandi snilld"
"...Og á 76. mínútu tekur Alan
Shearer við sér og skorar tvö mörk og tekur ekkert aukalega fyrir
það"
"...Nicky Butt hefur löngum verið talinn
furðulegur í framan...eins og allt lið Manchester United"
E-n tíman var hann að lýsa leik með
Fiorentina og myndavélin fór á eiganda Fiore. (sem ég man ekki hvað
heitir) og þá heyrðist í honum - 'NEI, Billy Joel á vellinum!!!'
O.K. Það vita kannski ekki allir hvaða maður þetta er, EN, Billy
Joel á ítalska boltanum. Ég hélt að ég yrði ekki eldri.
Gaupi í leik Liverpool-Newcastle:
"Varnarmenn Newcastle hafa varla séð það svartara en að hafa Emile
Heskey í bakinu á sér allan tímann"
Seinni hálfleikur er allt annað en fyrri hálfleikur
Velkomin aftur, en þá er það seinni hálfleikurinn í Arsenal -
Chelsea en staðan er 0-1 fyrir Tottenham...
Þeir eru mikið mun betri
Það er nú alveg hægt að brosa út í annað allavegana af
þessum setningum ef þið fattið pointið í þeim. Þessir
íþróttafréttamenn eru bara snillingar og þá sérstaklega rauða
Ljónið.
»
14.08.2006 17:16:37 / Arnarinn
Spurning dagsins:
Hvað er Mojito og í hvaða landi er
það þjóðar- (það sem það er ) ???
Já það er spurning 
»
26.07.2006 18:31:17 / Arnarinn
Jæja kominn tími á smá blogg. Ætla hafa léttan spurningaleik.
Hverjir eru á myndunum? Og hvað eiga þau sameiginlegt.
a)

b)

c)

d)

ArnarInn kveður með spurningarmerki???
»
10.07.2006 01:55:43 / Arnarinn
10 júlí er runninn upp og HM er á enda. Ítalir eru
heimsmeistarar í fótbolta, hver hefði trúað því, flestir voru á því
fyrir mótið að Brassarnir myndu taka þetta. Ég vonaði hins vegar að
Portúgal tæki þetta en það var meira svona þráhyggja en mín innri
sannfæring. Ég var allavegana svo sniðugur að setja peninginn minn
í leiknum okkar í m.fl. á Ítalíu og eru nokkrir bláir ítalskir
þús-kallar á leiðinni til mín. Veðjaði líka aðeins við vini og
fjölskyldumeðlimi fyrir úrsltin. Haha pabbi you owe me! og þú líka
Guðrún 
En fyrst mótinu er lokið þá ætla ég að veita nokkrar
viðkenningar og velja síðan lið mótsins að mínu mati.
Þeir sem komu mest á óvart: Þjóðverjar,
fyrir það að spila skemmtilegan sóknarbolta. Klingsmann minn maður
að gera góða hluti þrátt fyrir mikla gagnrýni fyrir mótið. Hann er
Guð í Þýskalandi núna. Til gamans má nefna að gömul bjalla sem hann
átti seldist á 29 milljónir á uppboði núna í kvöld.
Þeir sem komu EKKI á óvar: Spánverjar
fyrir það að skíta á sig þegar á reyndi. Þetta lið getur ekki unnið
stórmót. Einnig Englendingar fyrir að geta ekki neitt og spila
hundleiðinlegan fótbolta.
Vonbrigði keppninnar: Ronaldinho. Þessi
besti knattspyrnumaður heims náði sér ekki á strik.
Besta endurkoman: Zizu eða Zidane eins
og við þekkjum hann. Sýndi það og sannaði að hann er besti
fótboltamaður í heimi á góðum degi. Leiddi lið sitt í úrslitin
þrátt fyrir leiðindaratvik í úrslitaleiknum.
Besti leikmaður keppninnar: Fabio
"nagli" Cannavaro. Þessi maður var frábær í vörn Ítalanna og er án
efa besti varnarmaður heims. Frábær karakter sem leiddi lið sitt
til sigurs í keppninni. Fyrirliði Ítala.
Skúrkar keppninnar: Zidane - þrátt fyrir
frábært mót þá gerði þessi kóngur fótboltans sig sekan um hræðileg
mistök þegar hann lét vitleysinginn og rugludallinn Materazzi espa
sig upp sem endaði með því að hann skallaði hann og var að
sjálfsögðu rekinn útaf. Svartur blettur á feril Zidane sem er búinn
að vera svo glæsilegur. Var mjög leiðinlegt að sjá hann ganga
niðurlútan af velli. Hinn skúrkur keppninnar var Wayne Rooney fyrir
að brjóta illa á varnarmanni Portúgals og eyðileggja mögurleika
Englendinga að komast áfram.
Leiðinlegasti leikur keppninnar: Úkraína
- Swiss. Vá ertu ekki að grínast. Leiðinlegasti leikur ever! Bæði
lið með einn senter, fóru varla hvorugt yfir miðju, spiluðu í 120
mínútur án þess að skora, 3 marksot og ein rangstæða í þessum
leik.
Spútnik leikmaður mótsins: Fabio Grosso.
Hver viss hver Fabio Grosso var áður en keppninn byrjaði. Þessi 25
árs vinstri bakvörður Ítala og Palermo sló heldur betur í gegn.
Fiskaði vítið í 16 liða úrslitum á móti Áströlum á 89 mínútu sem
kom Ítölum áfram. Skoraði sigurmarkið í 4 liða úrslitum á móti
Þjóðverjum og kláraði svo Frakkana í vítaspyrnukeppninni og tryggði
Ítölum titlinn.
Bestu ungu leikmennirnir: C. Ronaldo
(Portúgal) og Lukas Podolski (Þýskalandi). Áttu báðir stóran þátt í
velgengi sinna liða á mótinu.
Ótrúlegasta atvik keppninnar: Fyrst
Zidane atvikið er búið að koma, þá verð ég að segja "vinasættir"
Lehman og Óla Kahn. Ótrúlegt að sjá þessa fjanda takast í hendur
eftir allar þessar illdeilur og fjandsemi sem hefur vafalaust verið
blásin upp af fjölmiðlum.
Skemmtilegasta auglýsingin meðan HM var í
gangi: Iceland air auglýsingin með landsliðinu og Ara
Gunnarsyni var alveg frábær. Æðisleg auglýsing. Hugurinn ber þig
aðeins hálfa leið.
Ætla láta þetta duga af viðurkenningum í bili. Þið megið
endilega vera mér ósammála og veita einnig fleiri ef ykkur dettur
eitthvað sniðugt í hug.
En þá er komið að....................
Úrvalslið HM 2006
Markvörður : Gianlugi Buffon (
Ítalía)
Vinstri Bakvörður: Fabio Grosso
(Ítalía)
Miðverðir: Lillian Thuram (
Frakkland) og Fabio Cannavaro (Ítalía)
Hægri Bakvörður: Philipp Lahm (
Þýskaland)
Vinstri kantmaður: Cristiano
Ronaldo (Portúgal)
Aftari miðjumaður: Andrea Pirlo
(Ítalía)
Fremri miðjumaður: Zinedine
Zidane (Frakkland)
Hægri kantmaður: Ze Roberto
(Brasilía)
Framherjar: Miroslav
Klose(Þýskaland)og Hernan Crespo (Argentína)
Þetta er byrjunarliðið og á bekknum væru svo eftirtaldir
leikmenn:
Ricardo (Portúgal), Roberto Ayala ( Argentína), Luis
Figo ( Portúgal) Gennaro Gattuso (Ítalía) Juan Riquelme (Argentína)
Michael Ballack ( Þýskaland) og Thierry Henry
(Frakkland).
Þjálfari mótsins: M.Lippi
(Ítalía)
Þetta er úrvalslið mótsins að mínu mati og þeir leikmenn sem
stóðu sig hvað best að mér fannst. Endilega segið mér ykkar
úrvalslið, alltaf gaman af svoleiðis og gagnrýnið val mitt.
Ætla enda þessa umfjöllun á nokkrum ómetanlegum augnablikum sem
voru fest á myndir.
   
 
ArnarInn kveður HM með stæl 
Edit:
10 júní - 10 júlí
Grosso er 25 - ekki 21
own me - owe me 
ekki Joan - Juan Riquelme
Komið með meira 
»
02.07.2006 17:36:14 / Arnarinn
Þú skalt halda hvíldardaginn heilagann segir í einu boðorðinu,
og það hefur Portúgalaska landsliðið væntanlega gert í dag eftir
sigur á Englendinum í rafmögnuðum spennuthriller í gær þar sem hinn
litskrúðugi Ricardo sendi Englendinga heim í öðru stórmótinu í röð.
Hann er sko sannarlega Portúgals"grýla" þeirra Englendinga eins og
við tölum um svíagrýluna í handboltanum.
En svo við tölum nú aðeins um leikinn þá var Rooney sá sem fór
illa að ráði sínu í leiknum. Held ég að strákur hafi ekki verið að
höndla pressuna sem var á honum, enda sjaldan gott þegar einn
leikmaður er orðinn stærri en sjálft liðið. Fyrir mótið var alltaf
talað um að möguleikar Englendinga fælust í því hvort Rooney yrði
með, og það getur ekki verið gott fyrir liðið þó hann sé vissulega
góður leikmaður. Annað sem verður fróðlegt að sjá er það hvernig
Ronaldo verður tekið í Englandi eftir mótið en ég tel líklegt að
hann fari til Spánar. Eitt sem ég skil ekki, og ef einhver getur
svarað mér þá endilega gerið það, Jamie Carragher??? að skella
honum inná til að taka víti Ég hló upphátt þegar ég sá þessa
skiptingu, enda var ég nokkuð vissum að hann myndi klikka. Hvað er
málið að láta miðvörð ætla fara taka víti í 8 liða úrslitum HM???
En ekki kvarta ég 
Frakkar unnu svo Brassana og sagði ég það fyrir leikinn að
frakkarnir myndu vinna. Brassar ekki verið sannfærandi og gaman að
sjá Kónginn hann Zidane svona sprækan. Frakkarnir spila svo um 3
sætið á móti Þjóðverjum og Ítalía og Portúgal um 1 sætið. 
Ricardo er maður vikunnar svo sannarlega!!! Og Ronaldo hefur
hækkað mikið í áliti hjá mér 

»
Síður: 1 2 3 4
|
|